



Herra Monsi er svo fallegur!!!Fleiri myndir hjá Steinari og Gunnari.
guns don´t kill people, people kill people and monkeys do too (if they´ve got a gun) -Eddie Izzard.
Siggi sæti kom í pössun um daginn til mín, hann stóð að sjálfsögðu undir nafni sem sá Sætasti því hann var klæddur í bámsagalla...
Mér leiddist það mikið í vikunni að ég bjó til sultu. Is I kurreisí? En hey, get ekki vitað hvort það er skemmtilegt fyrr en ég prófa það... and I´ll tell ya... það er ekkert leiðinlegt að sulta :) Leiðinlegast að týna berin, en ég var úti í röndóttu stígvélunum mínum og með ipodinn svo það var ekki sem verst. Annars er þetta frekar létt :)
Rakst á þessa mynd í Tiger, hef aldrei séð hana en titillinn og skrifelsið aftan á lofa góðu. Þar sem hún kostaði bara klink ákvað ég að bæta henni í DVD safnið mitt (já Hildur ég veit, ég á við vandamál að stríða). Er að bíða eftir rétta tækifærinu til að horfa á hana, einhver sem hefur áhuga á vídjókvöldi með mér? Popp innifalið. Ætti eiginlega að hafa náttfatapartý... Náttföt, vídjó og frosnar margarítur :)

Jibbí shibbí til ham með am Siggalicious
Plata dagsins, vikunnar og örugglega mánaðarins er nýja Muse platan. I love it I love it I love it!
Ble ble ble




Stolt móðir og afkvæmiÍ öðrum fréttum þá er ég að fara í óvissuferð eftir vinnu og svo eru auðvitað kosningar á morgun og ég verð að vinna uppi í Kópavogsskóla. Allir sem kjósa þar verða því endilega að kíkja á mig... verð dyravörður einhversstaðar þar. Munið líka að kjósa rétt, hvað sem ykkur finnst svo vera rétt :) Eigið góða helgi xxx Ragnhildur nýbökuð "mamma"... og já, það vantar íslenskt orð vinkonur nýbakaðra foreldra. Við erum ekki frænkur, en eigum sant skilið að fá einhvern titil. Opna hér með fyrir tillögur að titli.


Tók saman niðurstöður kynjagisks... Það voru samtals 14 sem giskuðu og 8 sem höfðu rétt fyrir sér :)


Tónleikarnir í gær voru phenomenal... eða phenómón með Antony Hopkins... Fráááábærir tónleikar og Cocorosie stelpurnar eru svo kreisí kúl... Þær eru líka með svartan gaur með sér á sviðinu og þegar hann byrjaði að syngja gerði ég mér grein fyrir enn einu softspoti hjá mér. Svartir menn sem syngja/tala á frönsku. Jöhömmí. Varð hugsað til gauranna sem við Valný hittum við Tjörnina í gamla daga, sé núna eftir því að hafa gefið þeim númerið á Dominos í staðinn fyrir mitt.

æjiiii greyið ríki maðurinn sem þolir ekki tvo daga matarlaust... Pælið í aumingjaskap hahaha tveggja daga hungurverkfall og hann er búinn á því. Gandhi myndi snúa sér í gröfinni af sjokki...
Wulffmorgenthaler blívar alltaf :D


ef þetta er ekki list... :)
Boston Legal eru svo ótrúlega skemmtilegir þættir, var að horfa á Halloween þáttinn, fyndnast í heimi að sjá Denny Crane og Alan Shore klædda sem tvo flamengo fugla, og mest fyndið hvað Denny Crane sagði um það: Tried it on. Looked good. Kept it on. Ótrúlega fyndinn í bleiku loðnu átfitti :D Just look at him!!! Svo var líka ræðan sem Alan Shore hélt um stríðið mögnuð, ég var alveg hell yeah, alveg að fara að kveikja í Hvíta húsinu þegar ég fattaði að ég er ekkert Kani. Úff úff, ég er alveg in luuuv af þessum þáttum. Boston Legal og House eru einu þættirnir sem ég passa mig að missa ekki af. Góður húmor.
Eins og þetta sé ekki eitt nóg til að horfa á hana þá er þetta alveg punkturinn yfir i-ið. Jonathan og Ewan saman... double trouble :D Sooo who´s with me?? Ég hringdi í Vídjóhöllina og þau eiga hana. Hlakka svooo til.