4 störf sem ég hef unnið við
-frístundaleiðbeinandi
-vaktstjóri 10-11
-verkamaður hjá Alcan
-bréfberi
4 kvikmyndir sem ég get horft á aftur og aftur
- Pulp Fiction
- Mary Poppins
- Big Fish
- Good Morning Vietnam
(glatað að mega bara velja fjórar, 400 and we´re talking, það vantar fullt af myndum inn á þetta… sagði bara það fyrsta sem mér datt í hug)
4 staðir sem ég hef búið á
- Bæjartún
- Meðalholt
- Pistol Court, California
- Sveitin hjá ömmu og afa, öll sumar- og páskafrí
4 sjónvarpsþættir sem mér líkar
- Boston Legal
- House
- Arrested Development
- Little Britain
4 staðir sem ég hef heimsótt í fríi
- Holland (báðar mínar systur hafa búið þar)
- Grikkland, Krít (útskriftarferðin)
- Ameríka
- England
4 síður á netinu sem ég heimsæki daglega
- gmail.com
- mbl.is
- wulffmorgenthaler.com
- stelpurofa.blogspot.com (fer svo á flesta linkana mína þaðan, nánast daglega)
4 uppáhaldsmatur
- Jólamaturinn hjá mömmu
- kalkúnn með öllu tilheyrandi
- allt með súkkulaðibragði
- kjúklingur og grænmeti í tikka masala með naan brauði
(and again, bara velja 4?? engan vegin hægt…)
4 staðir sem ég mundi frekar vilja vera á þessa stundina
- Delft
- San Fransisco svæðinu
- Manchester
- Kuala Lumpur (svo skemmtilegt að segja það)
4 aðilar sem ég klukka
- Una
- Hildur
- Sara Hlín
- Lena Dögg
Ekkert merkó í gangi annars. Fékk gjöf á valentínusardaginn, OG rauðan lakkrís. Lífið verður ekki mikið betra.
Thursday, February 16, 2006
Tuesday, February 14, 2006
bulludagur
Var á fundi í gær, þar var ákveðið að breyta hinum íslenska bolludegi í en bolledag!!! En þessu aldeilis óviðkomandi, ég hef engin plön 27. febrúar næstkomandi.
Wednesday, February 08, 2006
Saturday, February 04, 2006
TIL HAMINGJU ÍSLAND!!!
Sjett maður hvað Silvía Nótt var töff töff töff í Júróvisjón í kvöld. Ef einhver er svo klikkaður að vera ekki búinn að sjá þetta... þá er þetta hérna (rétt fyrir framan miðju). Ég vona svo heitt og innilega að hún rústi þessu stelpan og þessir júróvisjón vælarar geta haldið kjafti. Hún hefði samt rúllað þessu upp þótt lagið hefði ekki lekið á netið. Ég er pottþétt á því að það var Gittan sem lagði fram stjórnsýslukæru út af því... Því það er ekki séns að Birgitta vinni Silvíu... og ef það gerist, þá eru úrslitin fiffuð því lagið hennar var ógisla fokking ófrumlegt og tóm froða. Greinilegt að Gittan er stressuð, sáuð þið hvað hún var mikið að selja, í kjól og alles, öllu til tjaldað. Hennar tími... er liðinn. Silvía er líka bara hot bod, alveg að lúkka í þessu átfitti. Svo voru Nammi og Hommi að gera góða hluti líka, þeir fá alveg prik. Úff, ég er örugglega að blogga sama texta og einhver fjórtán ára gelgja :) en þetta var bara svo meeegaaa. Ég kaus tvisvar :D
Annars eyddi ég deginum með Sófusi. Þurfti að jafna líkama og sál eftir nóttina þar sem farið var frjálslega með debetkort á börum bæjarins. Svo frjálslega að ég var send heim (takk Áslaug fyrir það). En á undan því var Buzz & Beer -the sequal- hjá mér og Siggi stendur uppi sem ótvíræður sigari. jey. Þótt við Valur hefðum lagt stigin okkar saman hefðum við samt ekki náð honum, þetta var vægast sagt grátleg frammistaða af okkar hálfu. Orðin ryðguð í bössinu. Kíktum í smá ÍTK partý og fórum svo á Prekeð með fyrrnefndum afleiðingum. Áslaug bjargaði mér svo áðan þar sem ég hafði ekki þrek til að afla mér matar og kom með hammmborgara handa mér og við lágum yfir sjónvarpinu og netinu í massa þynnku. Ótrúlegasti húmor í gangi, verður erfitt að toppa þetta. Fundum þessa fallegu mynd á netinu við kvikmyndaleikaraleit....
ef þetta er ekki list... :)
Fer í hádeginu á morgun að ná í ipodinn. shibbíííí. Ekki enn komið nafn, ætla ekki að ákveða það fyrr en ég sé hann. Þannig að það er enn tími fyrir uppástungur frá ykkur. Ég veit ekki enn hver stakk upp á ipimp og ég er að kálast úr forvitni, hver var það??? Mega fyndið nafn en öll mín usual suspects hafa neitað þessu. Gef mér allavega vísbendingu.
Ööööössss, nú er klukkan að verða þrjú, veeeerð að fara að sofa. Leiterónís.
Annars eyddi ég deginum með Sófusi. Þurfti að jafna líkama og sál eftir nóttina þar sem farið var frjálslega með debetkort á börum bæjarins. Svo frjálslega að ég var send heim (takk Áslaug fyrir það). En á undan því var Buzz & Beer -the sequal- hjá mér og Siggi stendur uppi sem ótvíræður sigari. jey. Þótt við Valur hefðum lagt stigin okkar saman hefðum við samt ekki náð honum, þetta var vægast sagt grátleg frammistaða af okkar hálfu. Orðin ryðguð í bössinu. Kíktum í smá ÍTK partý og fórum svo á Prekeð með fyrrnefndum afleiðingum. Áslaug bjargaði mér svo áðan þar sem ég hafði ekki þrek til að afla mér matar og kom með hammmborgara handa mér og við lágum yfir sjónvarpinu og netinu í massa þynnku. Ótrúlegasti húmor í gangi, verður erfitt að toppa þetta. Fundum þessa fallegu mynd á netinu við kvikmyndaleikaraleit....
ef þetta er ekki list... :)Fer í hádeginu á morgun að ná í ipodinn. shibbíííí. Ekki enn komið nafn, ætla ekki að ákveða það fyrr en ég sé hann. Þannig að það er enn tími fyrir uppástungur frá ykkur. Ég veit ekki enn hver stakk upp á ipimp og ég er að kálast úr forvitni, hver var það??? Mega fyndið nafn en öll mín usual suspects hafa neitað þessu. Gef mér allavega vísbendingu.
Ööööössss, nú er klukkan að verða þrjú, veeeerð að fara að sofa. Leiterónís.
Monday, January 30, 2006
but hunters shoot flamengos
Boston Legal eru svo ótrúlega skemmtilegir þættir, var að horfa á Halloween þáttinn, fyndnast í heimi að sjá Denny Crane og Alan Shore klædda sem tvo flamengo fugla, og mest fyndið hvað Denny Crane sagði um það: Tried it on. Looked good. Kept it on. Ótrúlega fyndinn í bleiku loðnu átfitti :D Just look at him!!! Svo var líka ræðan sem Alan Shore hélt um stríðið mögnuð, ég var alveg hell yeah, alveg að fara að kveikja í Hvíta húsinu þegar ég fattaði að ég er ekkert Kani. Úff úff, ég er alveg in luuuv af þessum þáttum. Boston Legal og House eru einu þættirnir sem ég passa mig að missa ekki af. Góður húmor.Annars var ég að tala við Guðrúnu systur og ipodinn minn er á leiðinni til landsins!!! hæ hó og jibbí fokkin jey ég á ipod!! Fæ hann einhverntímann í vikunni, eins gott þið hjálpið mér að velja nafn á hann, verður að vera eitthvað flott. Hann er sko 60GB og svartur. Verð eiginlega að finna eitthvað svart nafn, eða eins og sumir vinir mínir myndu svo smekklega orða það, surtanafn :D
Lag vikunnar er Lighting Field með Sneaker Pimps. Replay aftur og aftur og gæsahúð og stingur í hjartað í hvert skipti sem ég heyri það. Ótrúlega flott lag. En ég keypti mér líka Röyksopp disk -The Understanding- hjá Áslu í Skífunni í gær og held hann verði diskur vikunnar hjá mér. Mjög góður diskur, mæli með honum.
Weebl and Bob hafa ekkert látið heyra í sér eftir 100 þáttinn, en ég sá það er hægt að kaupa R.I.P. Donkey bol hjá þeim haha.
OK, langaði aðallega að deila Boston Legal með ykkur og monta mig af hr. ipod. Blessó beibííí
Sunday, January 22, 2006
Happy endings are just stories that haven't finished yet.
Alveg róleg, er ekkert neikvæðari en vanalega, fannst þetta bara fyndin setning. Er að horfa á Trainspotting, þvílíkt flassbakk sem ég er að fá, tónlistin vekur upp minningar um diskótek í Snæló, hangs í Birkigrund, gamla vini, gömul hlátursköst og fleira :) Sick Boy er alveg jafn sætur :) En þetta er ekki besta myndin til að horfa á yfir kvöldmat. Í gær tók ég mig til og horfði á Scarface, tók mig langan tíma að mana mig upp í það, en svo er hún ekkert svo ógeðsleg. Ágætis mynd alveg, nú get ég farið að segja say hello to my little friend. og já stelpan sem lék systur hans, vááááá hvað hún var sæt! Hefði ekkert á móti því að líkjast henni.
Ég er búin að vera eitthvað að væflast um á netinu núna, og rakst á umfjöllun um mynd frá 1998 sem heitir Velvet Goldmine. Aldrei heyrt minnst á hana áður en eftir að hafa séð leikarana í efstu fimm hlutverkunum þá váá hvað ég ætla að leigja hana. Það eru Ewan McGregor (jömm), Jonathan Rhys-Meyers (jömm), Christian Bale (pirrar mig reyndar), Toni Collette (megaleikkona) oooog Eddie Izzard, fyndnasti maður sem ég veit um!
Eins og þetta sé ekki eitt nóg til að horfa á hana þá er þetta alveg punkturinn yfir i-ið. Jonathan og Ewan saman... double trouble :D Sooo who´s with me?? Ég hringdi í Vídjóhöllina og þau eiga hana. Hlakka svooo til.
Ég hitti Soffíu í kaffi áðan, hef ekki séð hana síðan áður en hún fór til Tævan, og svo ætlar hún að fara út aftur! og mér sem finnst það afrek að komast milli póstnúmera... En það var ótrúlega gaman að hitta hana.
Annars er lífið í Mholtinu voða rólegt og ljúft. Ég fer að vera búin að taka niður jólaskrautið, stefni að því að vera búin að því 1. feb. Það er nauðsynlegt að eiga sér takmörk í lífinu, en ég vil ekki fara of geyst.
Svo er smá möguleiki að ég sé að fá ipod. iwant ipod!!! Veit ekki hvað hann á að heita, svona fyrst lady Poddington er upptekið. Any ideas?
Núna dettur mér ekkert í hug að segja svo bara bletz.
Ég er búin að vera eitthvað að væflast um á netinu núna, og rakst á umfjöllun um mynd frá 1998 sem heitir Velvet Goldmine. Aldrei heyrt minnst á hana áður en eftir að hafa séð leikarana í efstu fimm hlutverkunum þá váá hvað ég ætla að leigja hana. Það eru Ewan McGregor (jömm), Jonathan Rhys-Meyers (jömm), Christian Bale (pirrar mig reyndar), Toni Collette (megaleikkona) oooog Eddie Izzard, fyndnasti maður sem ég veit um!
Eins og þetta sé ekki eitt nóg til að horfa á hana þá er þetta alveg punkturinn yfir i-ið. Jonathan og Ewan saman... double trouble :D Sooo who´s with me?? Ég hringdi í Vídjóhöllina og þau eiga hana. Hlakka svooo til.Ég hitti Soffíu í kaffi áðan, hef ekki séð hana síðan áður en hún fór til Tævan, og svo ætlar hún að fara út aftur! og mér sem finnst það afrek að komast milli póstnúmera... En það var ótrúlega gaman að hitta hana.
Annars er lífið í Mholtinu voða rólegt og ljúft. Ég fer að vera búin að taka niður jólaskrautið, stefni að því að vera búin að því 1. feb. Það er nauðsynlegt að eiga sér takmörk í lífinu, en ég vil ekki fara of geyst.
Svo er smá möguleiki að ég sé að fá ipod. iwant ipod!!! Veit ekki hvað hann á að heita, svona fyrst lady Poddington er upptekið. Any ideas?
Núna dettur mér ekkert í hug að segja svo bara bletz.
Tuesday, January 17, 2006
Monday, January 16, 2006
did you miss me???
Hæ! ég veit ég veit, ég er bloggletinginn mikli. Finnst ég ekki hafa frá neinu merkilegu að segja, er komin í svo mikinn hversdagsleika. Það er alltaf allt eins. Sem betur fer er þetta allt eins skemmtilegt svo mér er nokk sama :)
Una mín er farin, það var ótrúlega gott að hafa hana heima yfir jólin, kannski maður skelli sér bara til Hollands í páskafríinu.. ég held ég meiki ekki páskana án hennar, frekar en fyrri daginn. Negulnaglar... hahh, notaðirðu þá til að byggja húsið? Hehehe heyrðiru hvað ég sagði ég sagði... Negulnaglar... Mmmm pura. Mmmm pura. Mmmm pura. Grínlaust þá voru þetta einir Unulausir páskar... Aldrei aldrei aftur. Frekar drekki ég mér í hálftómu baðkari.
Ég kíkti í flösku á föstudaginn, strákarnir mínir (og Ásla en hún kíkti bara) komu til mín eftir vinnu og við lékum til 4 þegar við fórum á Prikið að dansa... gaman gaman. Á laugardaginn fórum við Hildur svo loksins á Harry Potter. Það er búið að taka ágætis tíma en djöfull er það góð mynd. Ég hló og grét og allt þar á milli. Besta hingað til...
Weebl and Bob eru komnir með hundraðasta þáttinn! Þvílíkur dramaþáttur, hafið tissjú við höndina þegar þið horfið á hann.

og talandi um teiknimyndir, mér finnst þetta svo ógó skemmtó teiknó.
Marblettur vikunnar er helvíti skemmtilegur, hann er á handabakinu eftir glæran plastpoka... Vel af sér vikið finnst mér.
Er þetta nóg blogg í bili? Lofa að blogga fljótt aftur. Thank you for stopping by, please come again.

Sunday, January 01, 2006
nú árið er liðið í aldanna skaut
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir þau gömlu!!! Ég er búin að hafa það allt of gott yfir jólin, borða mat og spila og drekka og vera glöð. Þessi helgi er búin að vera alveg rosaleg, á föstudaginn fór ég í þrítugsafmæli og djammaði eins og vitleysingur og skemmti mér mjög vel. Á gamlárs var ég svo bara þunn og mygluð í mat hjá mömmu og Einari, þau voru með rjúpur í matinn og ég hafði aldrei smakkað þær áður og verð að segja að ég fíla þær ekki... og þær eru alls ekki góður þynnkumatur. Ég fór svo í brjálað partý til Áslaugar og skreið heim kl. 9 um morguninn, eftir nokkra bjóra, skot, dans, klósettpappírsstríð og fleira skemmtilegt :) Fór svo í árlega nýársboðið til pabba og Gunnhildar og fékk kalkún og co. Svo spiluðum við og sprengdum rakettu. Í eintölu. Núna er þetta einhvernveginn allt búið og fólk farið að taka niður skrautið og það er svo öömurlegt, ég er að spá í að hafa jólatréð mitt bara áfram. og nokkrar seríur... og og... Það er svo fallegt :D
Áramótaheitið í ár er að gera meira, eitthvað ævintýralegt :) ekki bara hversdagshluti, heldur einhvað nýtt og spennandi. Vera þorin :)
Áramótaheitið í ár er að gera meira, eitthvað ævintýralegt :) ekki bara hversdagshluti, heldur einhvað nýtt og spennandi. Vera þorin :)
Saturday, December 24, 2005
GLEÐILEG JÓL

Gleðileg jól allir mínir englar, vinir og vandamenn. Vona að þið hafið það gott yfir jólin. Ástarkveðjur frá Jóla-stelpurófunni.
Thursday, December 22, 2005
22. desember 1975
Una mín er komin heim frá Delft og hún á afmæli í dag! Til hamingju með afmælið!!! Það besta samt er að hún FÆR PAKKA!!! Þrátt fyrir að ég hafi gert mitt besta til að koma í veg fyrir það! :D Sem betur fer er fólk gott og vel innrætt.
Til hamingju með daginn elsku bestasta Unamín!
Wednesday, December 21, 2005
Sunday, December 11, 2005
those Johnsons sure make me tremble
Var að koma heim af Antony and the Johnsons. Vá. Fyrir utan ömurlegustu sæti í heimi, massa súla fyrir framan nefið á mér, þá voru þessir tónleikar to die for. Hjartað á mér er búið á því, þetta var rosalegt. Ég elska tónleika þar sem performerinn talar við fólkið og maður veit honum finnst gaman að þessu. Gæsahúð niður á tær og til baka.
Þrátt fyrir stór orð áður er ég ekkert byrjuð að jólaskreyta. Er óttalega andlaus. Jólagjafirnar líka. Veit ekkert hvað ég á að gefa neinum. Endar líklega á að allir fá DVD myndir sem mig langar í :)
Fór í gær á jólahlaðborð með ÍTK. ég og mitt krú rúlluðum inn á staðinn allt of seint, klassi yfir okkur hehe. Það var kurreeiiisí gaman, ég fékk verki í andlitið afþví ég hló svo mikið. Það var líka rosa góður matur, kalkúnn m m mmm. Eftir matinn fórum við í eitís partý, við vorum ekkert í eitís gallanum, en einhver mætti með spreybrúsa og strákarnir réðust á okkur og spreyjuðu okkur upp. Elvar þessi elska spreyjaði líka aðeins í augun á mér, ossa gott. Ég vona bara að Áslan setji inn myndir bráðum, það voru nokkrar rooosalegar. Enduðum svo í bænum, dröslaði mínum fabulous rassi heim í morgunsárið...
I´m bored now

Wednesday, December 07, 2005
Sunday, December 04, 2005
It´s almost over!
Var að vinna í gær, það var verið að kveikja á jólatrénu í Kópavogi, og við vorum fengin til að hjálpa við uppsetningu og þannig. Held ég hafi sjaldan gert jafn lítið á einum vinnudegi, og þá tek ég með spiladagana og naptime bakvið skála í straumsvík! En það var samt gaman. Helga og Sæunn komu svo í mat til mín, ég eldaði svínakótilettur með timjani, sítrónu og heimagerðu pestói og kartöflumús og súkkulaðisúkkulaðifrauð sem var samt ekki frauð í eftirrétt. Maturinn var mega góður og ég er geðveikur kokkur, með hjálp Nigellu og Jamie Olivers :D Það var þéttnett gaman, við Sæunn hrundum í það í leiðinni, en grey Helga er í læreríi og mátti ekki fara út. Við update-uðum hver aðra af slúðri og við Sæunn fórum svo í bæinn. Þar sem hún var í heimsókn fékk hún að ráða á hvaða stað við færum.... og ég endaði á Sálarballi á Nasa. Það var mjög gaman, en hvað er með fólkið þarna? Önnur tegund af fólki. Allir með ógó ljóst hár og massabrúnir og stelpurnar í loðnum mittisjökkum og vestum.... weeeird. Og allir strákarnir í jakkafötum, sem er nú alveg í lagi, bara vanari gallabuxnaogbolastrákum. Hitti Kjartan stjúpbróður og við mössuðum sönginn í Sódóma laginu :D Um leið og Sálin var búin rak ég Sæunni út og á Prikið, en það var reyndar svo massa mikil röð að við fórum á Ara fyrst. Kíkti svo á Prikið í tvær og svo heim. Var ekki í stuði til að fara að sofa, en endaði á að sofna með lappirnar út fyrir rúmið enn í fötunum og stígvélunum. Þvílíkur róni.
Er svo búin að vera erkiletingi í dag, bara að hlusta á skemmtilega tónlist, Ass and Titties, Hoes get Naked og fleiri góða slagara. Áslaug sendi mér lagið Sunshowers með MIA, það er frábærlega skemmtilegt. Dillirassalag með meiru.
Kominn nýr Weebl and Bob þáttur, þeir verða betri og betri, lov´em. Stop stop stop that far too much information. Too much or too sexy?
Now it´s over!

Wednesday, November 30, 2005
she´s definately a pie nicker....
Það er bara allt fínt að frétta af hvítu stígvélunum. Leðrið virðist ætla að lúffa, er allavega hætt að fá náladofa þegar ég er í þeim. Keypti mér hvíta leðurtösku í stíl, 150 kall í Góða Hirðinum... ekki slæmt. Skemmtilegt að detta inn í eitthvað svona ólíkt stílnum manns... hvítt hefur aldrei verið mikið inn hjá mér.
Merkir atburðir gerast enn. Eldaði fisk í fyrsta skipti í gær hér í Mholtinu. OK OK Ásla eldaði en ég keyptann!!! Er ekki mikil fiskmanneskja og hef því alveg sleppt því að elda mér fisk, þar til nú. Verst þetta var ekkert spes, ekki Ásnum að kenna, sósan sem kom úr krukku var eitthvað.. spes. Leyfi mömmu bara að sjá um að elda fisk fyrir mig, ég er afbragðs grænmetis- og kjúklingaeldari. Can´t win´em all. Við horfðum á City of God meðan við borðuðum fiskinn, mæli ekki með því að horfa á hana á meðan maður borðar... hún er frekar ógeðfelld, en samt óóótrúlega góð mynd. Bara... ógissleg.
Helgin mín var ofsa róleg, djammlaus, var að vinna föstudag og laugardag, mjög gaman. Stíllinn var á laugardaginn og stelpur í minni félagsmiðstöð unnu tvenn verðlaun, massiv. Um kvöldið kom Lena, mín kæra úber ólétta vinkona, í heimsókn. Ótrúlega gaman, langt síðan ég hafði hitt hana. Sunnudagurinn var svo helgaður börnunum mínum bróður míns. Við fórum í leikhús á Klaufar og kóngsdætur, ég hló meira en allir aðrir í salnum, svo mikið að mamma sussaði á mig. Oft. Fáránlega fyndið leikrit. Svo fórum við heim til mömms og bökuðum jólasmákökur og lékum okkur saman. Á mánudaginn bökuðum við Arndís Þóra svo aftur, það er svo skemmtilegt að baka fyrir jólin! Verst að ég skildi allar kökurnar eftir hjá mömmu en ef ykkur langar í smákökur þá bankið þið bara upp á hjá henni.
Vissuð þið af tónleikunum 7. jan??? Crazy ass totally friggin awesome ég ætla svo að mæta! Miðasalan hefst á morgun. Ég verð límd við tölvuna á slaginu 10, ætla ekki að lenda í sama veseni og með Antony. Sem btw ég er ekki enn búin að finna neinn til að bítta við mig.. anyone??? Ég verð að fá að fara 11. des í staðinn fyrir 10. Common!!!!
Sæunn er á landinu, hef ekki enn hitt hana, en hún og Helga koma til mín í mat á laugardaginn, hlakka geðveikt til, en veit ekkert hvað ég á að elda. Líður eins og ég verði að elda eitthvað extra spes afþví hún er í heimsókn frá útlöndum :D Ligg yfir uppskriftum. Skemmtilegt hvað maður getur sett mikla pressu á sjálfan sig. Sama með jólagjafir, er nokkurnveginn komin með hugmyndina að hvernig pakkarnir muni líta út. Það verður að vera þema! I know... totally crazy person, en ég er jólastelpa... Er annars einhver sem ætlar að djamma um helgina? Eða er ég eina manneskjan í heiminum sem fer ekki í jólapróf???
Seinasta Top modelið í kvöld, djöfull vona ég að Keenyah detti út strax og Naima eða Kahlen vinni.... annars trompast ég!
Kíkið á nýjasta Weebl and Bob þáttinn, fokk fyndinn, búin að horfa á hann svona 10 sinnum...
Soffía klukkaði mig, djöfull er þetta erfitt klukk!
7 hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:
1) verða mjó og sæt
2) eignast wonder woman outfit
3) verða ástfangin uppfyrir haus
4) gefa út bók
5) búa í öðru landi
6) ferðast um allar heimsálfur
7) eignast barn/börn
7 hlutir sem ég get gert:
1) sofið og sofið og sofið
2) komið fólki til að hlæja
3) lagað stafsetningavillur
4) misskilið fólk
5) grátið yfir sorglegum OG gleðilegum atriðum
6) smíðað
7) mig rangeygða
7 hlutir sem ég get alls ekki:
1) farið á fætur og mætt á réttum tíma
2) stundað líkamsrækt reglulega
3) horft á ógisslegar myndir
4) verið alvarleg
5) klárað þetta klukk
6)
7)
7 frægir sem heilla:
1) John Travolta
2) Ewan McGregor
3) Megan Mullally / Sean Hayes
4) Josh Homme (ararr)
5) Jim Carey
6) Mike Myers
7) Jack Black / John Cusack
7 hlutir sem heilla mig við aðrar manneskjur:
1) húmor
2) góður tónlistarsmekkur
3) góður kvikmynda og þátta smekkur
4) greind
5) falleg augu
6) kaldhæðni
7) nett fokkitt attitúd
7 setningar sem ég nota mikið:
1) when come back bring pie
2) I´m a banana
3) mjáááá
4) hallo ástin mín
5) sjitt það er geeeeðveikt!
6) mmmm mig langar að sooofa
7) ég var að kaupa mér dvd disk
7 hlutir sem ég sé
1)tölvuna
2) hendurnar á mér
3) lítið blikkandi gervijólatré
4) g-mjólk
5) kaffibolla
6) tvo menn í faðmlögum (jói réðst á sigga)
7) afmæliskórónu
7 sem ég ætla ad klukka
1) Hildur
2) Una mín
3) Lena
4) Sara Hlín
5) Sæunn
6) Sigurgeir
7) Helena
En já, hætt farin búin bless
p.s. ekki gleyma að djakka

Sunday, November 20, 2005
Stelpustelpan ég...
ég er svoddan stelpa, var að skoða skó á föstudaginn og endaði á að kaupa mér geðveikt flott hvít leðurstígvél þótt þau væru allt of lítil! Ég gat ekki ekki keypt þau, þau voru líka svo ódýr :D Núna er því tilraun í gangi um hvort gefi sig á undan, leðrið eða beinin í fætinum á mér, so far so good. En ótrúlega praktískt, sérstaklega þar sem mig vantaði svarta hversdagsskó :) totally the same shizzit.
frekar kúl finnst mér :)
Annars er ekki svo mikið að frétta af mér. Fékk Buzz lánað yfir helgina og held ég hafi aldrei verið jafn vinsæl! Verð að kaupa mína eigin playstation tölvu :) Við Ásla skelltum í Buzz & Beer á föstudaginn og Hlínster, Atli og Siggi kíktu líka öll í Buzz, en það eru víst ekki allir jafn playstation sinnaðir :D Við Áslan kíktum svo á Prikið og Kaffibarinn, verð að segja að Prikið hafi staðið upp úr, þar var líka ansi fullur og fyndinn drengur ;) Við vorum samt ekkert svo lengi í bænum, fengum okkur smá nasl (Nonna) og heim að sofa. Á laugardaginn var ég að hjálpa pabba að flytja fyrirtækið í stærra og betra hús og svo kom Hildur til mín um kvöldið. Við horfðum á Veggfóður, ég pissaði næstum á mig ég hló svo mikið, hef ekki séð hana síðan ca 1996 :) svo fórum við í Buzz og kynntum Medúnu fyrir Singstar, hún vissi ekkert hvað það var :D Við fórum í Singstar 80s, hann er massa skemmtilegur, uppáhaldslagið mitt á honum er the power of love með Frankie goes to Hollywood :D en það eru ótrúlega mörg skemmtileg lög á honum.
En í dag er ég bara massa slöpp með hálsara og hausara og er að gróa föst við sófann.... svona næstum því. Fór þó í háddara til mömms. Vona að ég verði hressari á morgun, það er svo ógó leiðinlegt að vera hálf-veik.
Er núna að horfa á Playboy þáttinn á Sirkus, ótrúlega skemmtilegur þáttur :D hehe þær eru svo bright allar. En já, ætla að poppa verkjalyf og drepast í smá stund. Mússímússí allir saman xxx
frekar kúl finnst mér :)Annars er ekki svo mikið að frétta af mér. Fékk Buzz lánað yfir helgina og held ég hafi aldrei verið jafn vinsæl! Verð að kaupa mína eigin playstation tölvu :) Við Ásla skelltum í Buzz & Beer á föstudaginn og Hlínster, Atli og Siggi kíktu líka öll í Buzz, en það eru víst ekki allir jafn playstation sinnaðir :D Við Áslan kíktum svo á Prikið og Kaffibarinn, verð að segja að Prikið hafi staðið upp úr, þar var líka ansi fullur og fyndinn drengur ;) Við vorum samt ekkert svo lengi í bænum, fengum okkur smá nasl (Nonna) og heim að sofa. Á laugardaginn var ég að hjálpa pabba að flytja fyrirtækið í stærra og betra hús og svo kom Hildur til mín um kvöldið. Við horfðum á Veggfóður, ég pissaði næstum á mig ég hló svo mikið, hef ekki séð hana síðan ca 1996 :) svo fórum við í Buzz og kynntum Medúnu fyrir Singstar, hún vissi ekkert hvað það var :D Við fórum í Singstar 80s, hann er massa skemmtilegur, uppáhaldslagið mitt á honum er the power of love með Frankie goes to Hollywood :D en það eru ótrúlega mörg skemmtileg lög á honum.
En í dag er ég bara massa slöpp með hálsara og hausara og er að gróa föst við sófann.... svona næstum því. Fór þó í háddara til mömms. Vona að ég verði hressari á morgun, það er svo ógó leiðinlegt að vera hálf-veik.
Er núna að horfa á Playboy þáttinn á Sirkus, ótrúlega skemmtilegur þáttur :D hehe þær eru svo bright allar. En já, ætla að poppa verkjalyf og drepast í smá stund. Mússímússí allir saman xxx
Sunday, November 06, 2005
baby it´s cold outside
Ég viðurkenni það, ég er komin út úr skápnum... ég hlakka til jólanna! Mig langar að fara í IKEA og flippa á jóladóti og mig langar að skreyta og baka og pakka inn og finna jólatré... I think I have a problem. Er búin að vera að berjast við löngunina til að horfa á Elf og hlusta á jólalög, svo kom Áslan í dag í þynnkelsi og setti Elf í... og þá gat ég ekki meira. Skreytum hús með greinum grænum falalalalalalalalalaaaaaaaaaa jólajólajól HEY! Setti teljarann á jólin... ég vildi bara að það væri kominn desember.
Vikan mín var frekar róleg, einkenndist af late night teiknimyndaglápi á netinu, mæli með að allir horfi á weebl and bob til að skilja mig á næstunni, must buy the hats for clowns album......... aaaand a banana :) svo var ég að vinna á föstudagsnóttina, höfðum opið alla nóttina fyrir elstu krakkana, það var massa gaman, við gerðum tilraunir með hvítlauksídýfu, it wasn´t pretty... en drullufyndið :D En ég er búin að vera í smá rugli eftir nóttina, svefninn kominn í vitleysu.
Ákvað líka að vera bara róleg þessa helgi, ekkert djamm, skrapp í bíó á laugardagskvöldið á In her shoes. Alveg þess virði, mjög góð mynd. Svo ætluðum við Ásla á Kiss kiss bang bang í þrjúbíó í dag en hröktumst í burtu vegna alla litlu barnanna sem voru í bíó. Hver gaf börnum þrjúbíó á sunnudögum??? what is this?? við fórum því bara í Kringluna að lúðast og heimsækja Valnýjuna í vinnuna. Annars vorum við Valný að tala um það um daginn hvað það væri ömurlegt að hafa ekki topmodel dlísóin lengur, þannig að ég ætti kannski að brjóta odd af oflæti mínu og samþykkja batsjelor dlísó á fimmtudögum... ? Þetta er erfitt fyrir mig, en hvað gerir maður ekki fyrir vini sína... :) Eða bara kalla þetta Will og Grace dlísó :D Piglets, hvað finnst ykkur?
Ég er í smá vandræðum... Ég er að fara á Antony and the Johnsons, og það er meeega en ég á miða 10. des, og sama kvöld er ég boðin á jólahlaðborð sem ég vil svo innilega ekki missa af. Þannig að ef þið getið, eða vitið um einhvern sem getur... skipt við mig og Hildi þannig að við komust 11. des. plís plís plís hjálpið mér.
jæja börnin góð, þarf að hoppa niður og hengja upp úr vélinni... seeya xxx
p.s. when come back, bring pie.

Tuesday, November 01, 2005
ÁSLAUGardaginn síðasta
... átti Áslaug afmæli. Það var massa mega partý á Vatnsstígnum og við ultum á endanum niðrí bæ og héldum áfram þar. Mæli með að þið kíkið á myndasíðuna hennar Áslaugar, þótt stelpan sé hætt að blogga þá stendur myndasíðan alltaf fyrir sínu. Ég er reyndar líka komin með fotki síðu, www.fotki.com/stelpurofa, búin að setja Hollandsmyndir inn og sitthvað fleira, og læt ykkur vita þegar það fer eitthvað fleira inn á. Er nottla svo mikill rookie þegar kemur að digital vélum að ég gleymi henni alltaf heima. Me so silly. En svona bæðövei, ætla að benda ykkur á nýjustu linkana hjá mér, Sara Valný er komin með design síðu, Hildur er búin að endurlífga bloggið sitt og Siggi úr vinnunni og vinir hans eru með mjög skemmtilega síðu með bloggi, myndum, linkum, tónlist og allskonar og ef þið farið á Unusíðu, þá er hún komin með myndasíðu líka.
Siggi var að senda mér þennan link, sýnir hversu góðir Kínverjar (eða e-rjir) eru að þýða myndir :D svo er maður hissa á að þeir rugli r-i og l-i saman, það er nú það minnsta :D Allavega, massafyndið dót ;)
Fór í 58 ára ammli í kvöld til Gunnhildar, það var svo mikið úrval af kökum og brauðréttum að ég náði ekki einu sinni að smakka allt. And I gave it my best try! Ég er massa súr yfir því, það voru mjög girnilegar kökur sem sátu á hakanum. Kannski ég fari í heimsókn á morgun... hmmm nei djók :) glætan.... ég er að vinna.
Ekki rass að frétta svosem, þannig að ég heyri bara í ykkur seinna.

Subscribe to:
Posts (Atom)