Wednesday, August 30, 2006

mígrenisbakverkjaklumpufótakrampi

hææææ, veit veit... long time no

Minns er byrjaður að vinna aftur, það er ágætt nema húsnæðið okkar er í meikóveri svo við erum í lánshúsnæði, soldið böggin. Núna er ég yfirmaðurinn í mánuð og Áslan er byrjuð að vinna hjá okkur svo ég er yfir henni hahaha... hún verður að vera dugleg að sleikja mig upp :D

En já, ætlaði eiginlega bara að hrinda af stað næsta ANTM sjúkdómaveðmáli. Sjúkdómurinn seinast var nottla crap, bara alkóhólismi, reyndar ein með krabbamein en hún komst ekki áfram... En ég ætla að veðja ááááááá... shjett, dettur ekkert í hug. Hmmm thinky thinky...
ég segi geðklofi!

Hvað segir þú?

Wednesday, August 23, 2006

OH HAPPY DAAAAYYYY...

IKEA bæklingurinn er kominn í hús!

Friday, August 18, 2006

I can run but I can´t hide

Þá er það offissíalt. Ég er árinu eldri og vonandi vitrari sem samsvarar því. Eitthvað hef ég lært á árinu, ég er alveg viss um það... hvað það var veit ég hinsvegar ekki. En það eru nákvæmlega TÖTTÖGUOGFEMM ár síðan mamma reyndi að skila mér aftur til hjúkkunar með orðunum já en þetta var strákur, ég er alveg vissumða :)

Dagurinn í dag er búinn að vera frábó. Fór í háddara á Vegó, svo í klippingu og hausanudd til Jógvans og svo kom hele familien (f. utan einn svartan sauð) í kaffi. Ég fékk auðvitað þetta týpíska húsmóðurskast og hélt ég væri ekki með nógan mat handa öllum, búin að vera með í maganum yfir því að allir færu svangir heim... YEAH! Það var nóg... and then some. En sem betur fer get ég nýtt það í partýinu. Það var rosa kósí í kvöld, en ég auðvitað gleymdi að taka myndir. Silly me.

Takk fyrir mig allir sem hringdu, smsuðu, emailuðu, kommentuðu, myspeisuðu og komu í dag... ykkur hin sé ég í partýinu ;)

Monday, August 14, 2006

ég nenni ekki að blogga. Skemmtið þið mér í staðinn.

Wednesday, August 02, 2006

það er svo fyndið...

það er svo fyndið... að horfa á Brokeback Mountain með manneskju sem hefur aldrei heyrt um myndina og veit ekki um hvað hún fjallar. Hey, hvað er að gerast? Hvað eru þeir að gera? What??? Bíddu, UM HVAÐ ER ÞESSI MYND EIGINLEGA???!!!???
Awesome.

Ég fór í Unuhús með Áslu, Hlínster og Hilds að tjilla. Smá svona sumarfrí í miðri viku, góður matur, heitipottur, tjill og sól. Mjög gott. Er núna með nett brennda bringu. En það er líka bara kúl. Rautt er flottur litur!!! :)

Ég býst við að vera í bænum að mestu leiti um helgina, kíki eitthvað aðeins til Unu og vina í bústað ef þau fara... annars að sópa götur bæjarins með hárinu... so to speak.
Hvað ætlar þú að gera um helgina?

Monday, July 31, 2006

Sumarfríið mikla...

Ég er svo sniðug, náði mér í kvefpest í seinustu viku og er búin að vera lasin í sumarfríinu. Það er svo gott að liggja heima og þjást í fríinu sínu, alveg hreint yyyyndislegt. Er samt miklu betri núna, bara kvefuð en ekki lengur með hálsbólgu og hita. Eeeeen nóg um það.
Skrapp á ættarmót á laugardaginn, pabbaætt var með ættarmót í Logalandi í Útálandi. Það var mjög gaman, við fórum í Kubb og ég náði geeeeðveiku skoti, framhjá stóra kóngnum og beint í litla gaurinn sem var stillt fyrir aftan. Svo var ég almennt líka bara þrusugóð í Kubb, var valin fyrst í lið eftir fyrsta leikinn!! :) Hefðu útsendarar frá Kubbskólum heimsins verið þarna hefði mér verið boðinn styrkur á nóinu. Á heimleiðinni kíktum við Una til Sillu og Einars vina hennar, en þau voru að flytja á Akranes. Vorum eitthvað að tjilla með þeim og svo um kl. 3 um nóttina skruppum við í Skógrækt Akraness til að róla. Mjög gaman og ótrúlega flott útivistarsvæði þar.
Í gær fór ég á Sigurrósar tónleikana á Klambratúni með Unu og Hildi. Það var geðveikt flott og þvílík hrúga af fólki þarna. Awesome. Við fórum með teppi og vínflösku og sátum úti á túni :) Vona að það verði oftar sem einhverjir svona tónleikar verði á Miklatúni, auðvitað ekkert hægt að hafa Queens of the Stone Age tónleika eða eitthvað hvaðsemer þarna. En þetta svæði finnst mér henta t.d. betur fyrir Menningarnæturtónleika og 17. júnítónleika heldur en svæðið við höfnina.

Hahaha váááá í Fréttablaðinu í dag á bls. 4 er frétt um 10.000 plastendur sem duttu af skipi árið ´92 og eru enn á siglingu um hafið og koma bráðum að landi í Bretlandi. Þetta er ekkert smá frábært. Væri til í að vera á ströndinni þegar allar endurnar mæta. Geeeeðveikt. Ætli ZeFrank viti af þessu?
Einnig í Fréttablaðinu: Lance Bass (Rass) er hommi.

Afmælisbörnin þessa dagana eru Soffía 28. júlí og Sæunn 30. júlí. Til ham með am! En eiginlega til ham með öm :) þar sem fleirtalan af ammli hlítur að vera ömmlu.

En já, með orðum Looney Tunes...

Tuesday, July 25, 2006

brandari... í alvöru, þetta er brandari

Einu sinni var maður sem átti kött sem hét Háskólavefurinn. Einn dag týndi hann kettinum og fór út um allt hverfi að leita að kettinum og kallaði og kallaði Háskólavefurinn Háskólavefurinn!! Hann fór líka til dýralæknisins og sagðist hafa týnt Háskólavefnum. Hann fann köttinn hvergi og fór heim. Þá fór fólk að koma heim til hans og segja Háskólavefurinn Háskólavefurinn og þá klikkaðist hann.
Fin

Saturday, July 22, 2006

Take a bow

Ég bý í æðislegu hverfi. Í alvöru. Það er bara stundum sem ég fæ augnabliks efasemdir, eins og í gærkvöldi. Við Una ákváðum að skella okkur í föstudagsbíltúr, þetta var eftir miðnætti, þannig að við fórum út og vorum eitthvað að væflast í bakgarðinum fyrst og heyrum þá í screamer konunni. Einhverjir voru búnir að heyra upptökuna mína af henni, kona í húsinu sem gæti fengið starf í klámmynd hún veinar svo mikið.... og lengi. Við vorum eitthvað að hlæja að henni, þá koma tvær unglingsstelpur út í garðinn hinummegin og önnur byrjar að æla og æla og æla afþví hún var svo full. Þetta var frábært, alveg andlegt Kódak móment.

Annars er alveg frábært að vera í sumarfríi, mér leiðist ekkert ég hef alveg nóg að gera. Ég er ekkert viss um að ég hafi tíma til að mæta aftur í vinnuna þegar fríið er búið... En ég myndi líklega ekki lifa lengi á loftinu.
En ég er búin að kaupa mér hjól, það er oh so purty rautt og silfrað stelpuhjól, en á eftir að fá körfu á það. Svo kauftaði ég skóhillu í Ikea og málaði hana... rauða. oooooog við fengum "nýja" notaða sláttuvél og og og ég keypti mér grill og grillaði í gær jey!

En núna ætla ég út í hjólatúr og svo í kvöld er ammlið hans Sigga!

Jibbí shibbí til ham með am Siggalicious

Plata dagsins, vikunnar og örugglega mánaðarins er nýja Muse platan. I love it I love it I love it!

Ble ble ble

Wednesday, July 19, 2006

official

Unofficially er ég komin í sumarfrí. JEI!
En þar sem flestir lesendur mínir eru líklega líka í sumarfríi þá er öllum líklega sama þótt bloggin verði random hjá mér...

sumarsumarsumarsumarsumarsumarsumar... :D

Monday, July 17, 2006

Hann á afmæli í dag hann á afmæli í dag


hann á afmæli herra Hasselhoffffff
hann á afmæli í dag!!!

Thursday, July 13, 2006

þreytt? ég? aldrei...

Vá hvað ég hlakka til að komast í sumarfrí. Hvern dag þessa vikuna er minna búið af hverjum degi áður en ég er komin með nóg og vil fara heim. Ég á skilið að fara í sumarfrí, ég er farin að vera svo helvíti cranky og tussuleg. Ég fer í... sumarfrí :) Farin að sjá í hillingum sólríka sumardaga á Laugarvegi í pilsi og hlýrabol að drekka kaffi eða bjór úti með öllum mínum vinum. Haha so not gonna happen, það verður pottþétt rigning allan tímann. Helv skítaland. En þá eru það bara röndótt stígvél og regnhlíf, next best thing. Ég er búin að vera með svo mikið samviskubit að hafa ekkert hitt suma vini mína svo lengi, svo ákvað ég í dag að hætta því, ég fer í frí í næstu viku og þá á ég tíma fyrir ykkur öll. Svo endilega segið mér bara hvenær þið eruð laus og hvað þið viljið koma að leika og ég kem um hæl.
En þangað til er ég þreytt og leiðinleg.

Ask anyone.

En já!!! Að öðru. Fann mega flott stelpuhjól í Útilíf áðan. Rautt og silfrað, 21 gíra, hægt að setja körfu o.s.frv. ooooog mamma mín elskulegust er búin að samþykkja að gefa mér það í snemmbúna hósthóstmanekkihvaðgömulhósthóst ammlisgjöf! Þannig ég ætla að reyna að draga hana í búðina um helgina og svo get ég hjólað í búðina og til Áslu og Hildar og allra sem búa nógu nálægt haha.

En núna er ég þreytt og mygluð og farin að hvíla mig. Bletzó

Tuesday, July 11, 2006

VARÚÐ!

Var að sjá að það er búið að færa ANTM fram um klukkutíma. Merkið þetta hjá ykkur og gerið viðeigandi ráðstafanir. ANTM byrjar kl. 20:30 á morgun, ég endurtek 20:30, en ekki 21:30 eins og áður.

Monday, July 10, 2006

Mánudagur

Það er bara vika eftir af námskeiðinu!!!
Vika!
Ein mothafuckin vika!

Tuesday, July 04, 2006

ú, sætur gaur hjá Leno

Í starfi mínu hef ég þróað með mér afspyrnu gott pókerface. Það er nauðsynlegt þegar strákarnir mínir segja og gera einhverja vitleysu en í dag... í dag gat ég ekki haldið andliti. Ég hló og hló og hló. Annar specialistanna minna var svo gjörsamlega talking out of his ass... Var að tala um einhvern leikara sem hann fletti upp á netinu. Leikarinn dó af natural causes (lesist kauses, ekki koses). Jahá, en hvað er það? Ömm ég held það sé einhver sjúkdómur. Ok, er þetta algengur sjúkdómur? Já, ég hef séð oft á netinu að fólk hafi dáið úr honum. Veistu hvað hann heitir á íslensku? Já... eh sko þetta er svona eins og fílaveikin. Ha??? Já, ég veit alveg hvað fílaveiki er, það er svona þegar annar fóturinn er lengri en hinn.... og þetta hélt áfram og áfram endalaust. Sigga tókst að draga hann í marga hringi með þetta, þetta var svo hræðilega fyndið og súrealískt. Það sem fólki dettur í hug að segja.

Ég er búin að vera á milljón að þrífa heima hjá mér. Það var allt orðið svo skítugt, byrjaði fyrst að gera þetta venjulega, taka til og þurrka af og þrífa klósett. Svo þreif ég af öllum hurðum og skápum og listum og endalaust áfram. Eftir því sem maður þrífur meira finnur maður meira að þrífa. It´s insane... ætla sko aldrei aftur að þrífa. Borgar sig ekki, búin að vera að í tvö kvöld. Skúraði meira að segja, and I don´t do that. En mikið verður gaman að skíta aftur út. Ætti eiginlega að halda partý. Ni, hafa fínt jájá rosa gaman. Það má aldrei neinn koma í heimsókn framar því þið skítið bara út... En ég henti kettinum út, eftir að ég skúraði eldhúsið kom hún skokkandi inn úr rigningunni með blauta mold á fótunum yfir gólfið. Hún fékk að dúsa fram á gangi meðan hún þornaði.

Um fótboltann... I don´t care... Djók djók, alveg fínt að fylgjast með, verst að öll fjögur löndin sem ég hélt með eru dottin út. Holland, England, Brazilía og Þýskaland. Núna er mér fokk sama hver vinnur. En já vá, leikmaður númer átta (uppáhaldstalan mín) í brazilíska landsliðinu heitir Kaka!!! Tilviljun? Ég held ekki. Hann er nýji uppáhalds íþróttamaðurinn minn. Seinasti var held ég Magic Johnson... I forget.

Plata dagsins hjá mér er Paradísarfuglinn með Megasi. Hendi henni mjög oft á þegar ég stend í stórhreingerningum. Mæli með því. Gott stöff. Lóa Lóa Lóa en þú færð bara ekkert huggulegra hross. Það hljómar kannski billega, en komdu og gefðu pabba koss.

En segið mér eitthvað fallegt því það er grátt og ljótt úti þessa dagana.
lovelovelovelovelove Ragnhildur

Piss: það er sætur gaur í viðtali hjá Leno

Friday, June 30, 2006

"flöskudagur"

Hér kemur ein klassík í boði nostalgíu og those were the days. Gamli góði álvers föstudagsdansinn.

ýttu á myndina

Thursday, June 29, 2006

29.06.06

Hildur er komin heim frá Krít, ótrúlega brún og sæt... og ætlar að halda upp á útskriftina sína úr Kennó í kvöld. Jeyyy til hamingju með útskriftina. You are a gentleman and a scolar.

Ég fór í grill til pabba & Gunnhildar í gær, fékk grillaða lúðu og ég er ekki frá því að það hafi barasta verið betra en grillað kjöt. Ótrúlega gott. Svo var Sýn órugluð í klukkutíma þannig að pabbi datt út (hmmm kannast einhver við fólk sem hverfur inn í sjónvarpið?) og við Gunnhildur vorum að skoða prjónablöð og hún lagaði kjól fyrir mig og við vorum á allan hátt að vera stelpur til að vega upp á móti fótboltanum :)

Ég hlakka ekkert smá til laugardagsins, þá fer ég í brúðkaup hjá Caio og soon to be manninum hans. Held það verði ótrúlega gaman, Siggi og Valur fara líka með kærustum og auðvitað "kærastan" mín líka þannig að við verðum í dásemisrugli. Ef allt fer samkvæmt áætlun þá endum við sex í sparifötunum sitjandi ofan í heitapottinum.

Úff, ég er orðin svo þreytt á bröndurunum hérna í vinnunni... shjett hvað ég hlakka til helgarinnar. Ble í bili...

Thursday, June 22, 2006

en AF HVERJU...?

Lenti í óóótrúlega skemmtilegu þrasi í dag. Að sannfæra manneskju með sjö stafa nafn að nafnið væri sjö stafa en ekki átta stafa, ekki einu sinni með því að reyna að troða auka H-i inn einhversstaðar. Ég þurfti að svara til saka fyrir íslenskt málfar og þróun tungumálsins og sama hvað ég sagði þá fékk ég en AF HVERJU??? Úff, þetta var frekar fyndið :D Annars fór dagurinn á "skrifstofunni" u.þ.b. svona. Mæta, tjilla uppí sófa, síðan plata strákana til að fara út með sófa og sófaborð og meira tjill uppí sófa... bara í sólinni. Drííííífelsi með bílinn í viðgerð og svo meira sófasólartjill. Síðan að leika sér í Fossvognum að veiða síli og busla í læknum, síðan pikknikk, svo krikket og leika með bolta, liggja í grasinu og svo inn í restina að spila UNO. Var ég einhvern tímann búin að segja ykkur að ég elska vinnuna mína?

Annars segi ég bara
sól sól skín á mig
ský ský burt með þig
gott er í sól að gleðja sig
sól sól skín á mig

Hehehe, ég eeeelska þessar teiknimyndir, þær eru svo hræðilega fyndnar :D



"orange" you glad I didn´t say banana ;)

Tuesday, June 20, 2006

Rax Pizzabuffet


Bauð mömmunni, mömmunni to be og konunni minni í mat í gær í tilefni kvenréttindadagsins. Reyndar læddist einn lítill herramaður með en þar sem við erum allar yfir okkur ástfangnar af honum og hann er svo þægur og góður þá var það meira en allt í lagi. Ég skellti í tvær pítsur og perraðist nett með áleggið... ekki allir jafn hrifnir af brokkolí á pítsum og ég :D Við áttum síðan rosa kósý kvöld saman. Mér finnst svo gaman að halda matarboð á dögum eins og mánudögum og þriðjudögum því það eru yfirleitt svo leiðinlegir dagar og allir heima að nördast. Líka alltaf gaman að bjóða Hlínster í mat því ég fæ alltaf svo mikið hrós frá henni, alveg sama hvað ég elda :) alltaf gott að láta klappa egóinu sínu. Ég var einmitt að laga linkinn á bloggið hennar því gamli linkurinn virkar ekki lengur en linkurinn hér til hliðar virkar núna.

Annars er lífið frekar rólegt í Mholtinu þessa dagana, ég er búin að vera frekar grá í skapinu í stíl við veðrið. Líður eins og það sé komið haust og myrkur og kuldi framundan. Fékk í gær meira að segja hrikalega kvíðatilfinningu, en veit ekki yfir hverju. Grunar svosem það hafi bara verið koffín overdose, engu að síður mjög óþægileg tilfinning.

Ég kíkti út á laugardaginn (17. júní) með Sæunni, hún er loksins komin heim eftir að hafa verið í Kaliforníu í vetur, hún endaði dvölina þar ansi grand með road trippi frá Kaliforníu til New York. Er enn að bíða eftir fleiri road trip bloggum en hún hætti að blogga einhversstaðar í Oklahoma... Við skemmtum okkur alveg stórvel í bænum við að elta uppi sæta stráka :) hehehe en meira um það seinna.

Er að vinna og er farin út í körfubolta... Þetta er erfitt starf, en einhver verður að gera það.
Blessíbili, Raxterína sumarpína

Piss: Siggi er með tigermunstraðan poka á hausnum, F A B U L O U S

Monday, June 19, 2006

Bleikt

Í dag...
er ég í bleikum sokkum.

Gleðilegan kvenréttindadag.

Sunday, June 18, 2006

Reykjavík Ísland Ísland

Nei ég er ekki enn í Manchester, því miður komum við aftur heim í hreinræktað íslenskt skítaveður. Það var frábó úti í Manchester og mig langar að eiga heima þar og eiga breskan kærasta og tala með breskum hreim og segja hluti eins og knob, well fit, cheers mate og geta keypt föt í háogemm og skó í evans og frappuchino og bananamúffur á starbucks og doritos lime útí sjoppu. (hahaha, Egils er með umboðið fyrir Doritos og ég sendi þeim línu)
En já ferðin. Fluginu okkar var frestað aftur og aftur svo við fórum ekkert út á völl fyrr en seint og um síðir en enduðum samt á að þurfa að bíða þar allt of lengi. En ég hefndi mín aldeilis á þeim... allir fengu nebbla fría sómasamloku og kók sem sárabætur við fimm klukkutíma seinkun, en við Ásla tókum fancy samlokur þar sem það var enginn að fylgjast með okkur, starfsfólkið var komið í pásu og svo tók ég líka bananamúffu og borgaði ekki fyrir hana! Ég er svo klikkuð... ég lifi hátt og hættulega. En já, bíða bíða bíða, gera grín að öllum öðrum, koma skrítnum lögum fyrir í kollinum á Áslu og vera í vitleysiskasti eins og okkur einum er lagið. Svo loksins loksins kom boarding call og allir þeystust inn í vél, hentu farangrinum upp, settust og spenntu sig, nokkrir táruðust af gleði yfir að vera loksins að leggja af stað, Bretarnir um borð voru nebbla orðnir hræddir um að missa af leiknum daginn eftir. Við Ásla vorum í sætaröð 35, as in aftasta röð... En já...þá kom flugkafteinninn í talstöðina og tilkynnti okkur að vélin væri biluð og allir út aftur. Jeeeyyyyyy. Fengum að bíða í klukkutíma í viðbót og svo inn í nýja vél, en hún var bara með 33 raðir... as in ekki sætin okkar Áslaugar. En sem betur fer var ekkert uppbókað svo við fengum meira að segja heila sætaröð hvor. Ég svaf síðan mest alla leiðina, rétt vaknaði til að borða eitthvað með heimsins versta karrýbragði. En þegar þú frestar flugi um marga klukkutíma á föstudagskvöldi býður þú upp á flugdólgslæti... Alltaf þarf eitthvað fólk að vera svo vitlaust að fara upp á völl án þess að tékka hvort vélin sé á tíma. Þannig að það var einhver hópur af íslensku Sellfoss/Keflavíkur-gítarpartýaðsyngjaíslenskpopplögdrekkumkafteiníkók náðuhápunktiígrunnskólafólki (it´s a word) búinn að drekka síðan kl. 3 um daginn og ein beygla þarna vel sjúskuð. Ég grísa á að hún vinni á Casino í Keflavík... en já er eitthvað að beyglast þegar vélin er lent en ekki stopp og fer að rífast við vinkonu sína, notar mjög falleg orð um hana, greinilega ekki feministi því femininstar nota ekki orðið píka í svona ljótri merkingu. Endar síðan að rífa kjaft við mann sem var þarna með fjölskylduna sína, ótrúlega góð í að koma fyrir sig orði, ætti alveg að vera lögfræðingur... þegiðu þarna, þú ert með skalla iiiii þú eitthvað skalli úti í bæ ég þarf ekkert að hlusta á þig þú ert með skalla... Þvílík orðlist. Hún reif líka kjaft við vegabréfsskoðunarfólkið sem hótaði að hleypa henni ekki inn í landið. Var að spá í að biðja hana um að verða pennavinkonu mína, yndisleg sál.

Úff vá, allt of langt blogg... OK restin var svona (lesist hratt, er að pikka á milljón): heim til Fionu og Glen að sofa, ótrúlega sæt íbúð sem hún á og hann leigir hjá henni... Daginn eftir með Fi og Keir að borða enskan morgunverð og horfa á leikinn... fáránlega heitt allan tímann, tjilla og svo kom Louise líka, fokkin fyndnasta manneskja Bretlands og við hrundum í það. Íslenskt Opal skot sló ekki í gegn, helv aumingjarnir. Fórum út og á milljón staði og vorum hress&kát þangað til við vorum full&kát og svo sjúskuð&kát og í endann subbuleg&þreytt. Stikkorð: vodka í dietkók, vodka í cranberry hellt yfir græna bolinn minn svo núna er hann fjólublái bolurinn minn, Litháar, blikkandi snuð, ógeðis Indverji... Daginn eftir fengum í morgunmat heimsins verstu samloku. Kalt fransbrauð, smjör á aðra sneiðina, tómatsósa á hina og beikon á milli. Not tasty... Bresk matargerð alltaf jafn frábó.
Daginn eftir fórum við með Fi og Glen í bílferð niðrá strönd og svo í bæinn sem Glen ólst upp í, frábær tjill dagur ótrúlega kósý og svo leti um kvöldið. Leitaði að lime doritos út um allt en fannst hvergi. Reyndum að horfa á Silent Hill en gáfumst upp. Horfðum í staðinn á Besta. Sjónvarpsþátt. Í. Heimi. Um sorglegt fólk í UK og brúðkaupin þeirra.
Á mánudeginum tókum við Ásla powershopping á þetta þar sem við sváfum yfir okkur og fengum því bara smá tíma í búðum. Gaman gaman, keypti mér þrjú skópör... :D
Svo var kominn kveðjutími og auðvitað gat vélin ekki fokkast til að vera sein á heimleið... Þannig að þetta var allt of stutt ferð og við erum búnar að vera þunglyndar úr Íslandsleiðindum í viku. Ég vil fara aftur úúúúúút.

OK þetta er ferðasagan... nokkurnveginn. Lesendur líklega löngu búnir að slökkva svo ég get í raun sagt hvað sem mér sýnist það er enginn að lesa... Fíkus.