Var að vinna í gær, það var verið að kveikja á jólatrénu í Kópavogi, og við vorum fengin til að hjálpa við uppsetningu og þannig. Held ég hafi sjaldan gert jafn lítið á einum vinnudegi, og þá tek ég með spiladagana og naptime bakvið skála í straumsvík! En það var samt gaman. Helga og Sæunn komu svo í mat til mín, ég eldaði svínakótilettur með timjani, sítrónu og heimagerðu pestói og kartöflumús og súkkulaðisúkkulaðifrauð sem var samt ekki frauð í eftirrétt. Maturinn var mega góður og ég er geðveikur kokkur, með hjálp Nigellu og Jamie Olivers :D Það var þéttnett gaman, við Sæunn hrundum í það í leiðinni, en grey Helga er í læreríi og mátti ekki fara út. Við update-uðum hver aðra af slúðri og við Sæunn fórum svo í bæinn. Þar sem hún var í heimsókn fékk hún að ráða á hvaða stað við færum.... og ég endaði á Sálarballi á Nasa. Það var mjög gaman, en hvað er með fólkið þarna? Önnur tegund af fólki. Allir með ógó ljóst hár og massabrúnir og stelpurnar í loðnum mittisjökkum og vestum.... weeeird. Og allir strákarnir í jakkafötum, sem er nú alveg í lagi, bara vanari gallabuxnaogbolastrákum. Hitti Kjartan stjúpbróður og við mössuðum sönginn í Sódóma laginu :D Um leið og Sálin var búin rak ég Sæunni út og á Prikið, en það var reyndar svo massa mikil röð að við fórum á Ara fyrst. Kíkti svo á Prikið í tvær og svo heim. Var ekki í stuði til að fara að sofa, en endaði á að sofna með lappirnar út fyrir rúmið enn í fötunum og stígvélunum. Þvílíkur róni.
Er svo búin að vera erkiletingi í dag, bara að hlusta á skemmtilega tónlist, Ass and Titties, Hoes get Naked og fleiri góða slagara. Áslaug sendi mér lagið Sunshowers með MIA, það er frábærlega skemmtilegt. Dillirassalag með meiru.
Kominn nýr Weebl and Bob þáttur, þeir verða betri og betri, lov´em. Stop stop stop that far too much information. Too much or too sexy?
Now it´s over!
Sunday, December 04, 2005
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
8 comments:
pant koma í mat til þín í jólafríinu!!!
haha, já ætli það gerist ekki einu sinni, jafnvel tvisvar ÞAR SEM ÞÚ MUNT BÚA HJÁ MÉR !!!
naptime bakvið svefnskála í straumsvíkinni... GOOD times :)
já allt góðir slagarar þarna... mitt ass and titties lag er samt betra! gæti líka sent þér lög eins og -> youse a ho, gimme that nut, slob on my nob og put it in ya mouth.... allt hugljúf lög með fallegum boðskap!
annars er nottla sunshowers best og fer ekki úr mínum stóra haus þessa dagana
Ég fékk að heyra Ass and titties á laugardaginn og held ég bara fíli það í botn. Mjög hugljúft og sætt lag þar á ferð ;)
Btw. Rax, ég hringi í þig á morgun eftir prófið til að fá útlistun á bæjarferðinni á lau eftir að ég fór heim að nördast ;)
Hrikalegt að heyra að þú hafir látið draga þig á Sálarball
Ég veit það! En sjáðu bara hvað ég er GÓÐUR vinur! (hver ertu annars?)
Hey það var ógeðslega gaman á ballinu!!
Takk fyrir súperkvöld og geeeeeeeðveikan mat :)
Luv
já, skemmti mér mjög vel, hló allavega mjög mikið :D en get ekki látið fólk halda að ég taki það upp með sjálfri mér að fara á Sálarball ;)
Post a Comment